Written on July 28, 2023, by Águst · in Categories: Flóra
Eftirtektarvert er, að mjög víða á stórum steinum og í klettum vaxa blaðkenndar fléttur, sem eru festar við undirlagið aðeins með einum sterkum miðstreng. Fléttur þessar nefnast því naflar (Umbilicaria), en nafli á latínu er umbilicus. Auðvelt er að losa þær frá steinum, en í þurrki eru þær mjög stökkar og brotgjarnar, en í vætu […]
Lesa meira » Grein þessi birtist í Morgunblaðinu 27. júlí 1995. Einhverra hluta vegna kom greinin við kaunin á mektarmönnum, en henni var því miður aldrei svarað heldur var eg settur á „svartan lista” að því starfsmaður í landbúnaðarráðuneytinu sagði mér. Grasræktarlandið! Almennt áhugaleysi og jafnvel óbeit á skógrækt er nú á hröðu undanhaldi. Í mörg ár […]
Lesa meira » Written on November 22, 2022, by Águst · in Categories: Mosar
Written on November 10, 2022, by Águst · in Categories: Almennt
Hér að neðan er lykill að gömlu kennsluhefti: agripnytt07
Lesa meira » Written on September 27, 2022, by Águst · in Categories: Mosar
Í eftirfarandi PDF-skjali er listi yfir skráðar tegundir flat- og hornmosa, sem vaxa á Íslandi. Listi þessi er verulega frábrugðinn fyrri listum (sjá meðal annars Bergþór Jóhannsson: Íslenskir mosar – Skrár og viðbætur. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar n:r 44. Apríl 2003 og Á.H.B.: Mosar á Íslandi. 2018.) – Mörg ný íslenzk ættkvíslar- og tegundarnöfn koma hér fyrir […]
Lesa meira » Nýverið rakst eg á þetta sérprent um Bæjarstaðarskóg eftir föður minn, Hákon Bjarnason, sem mér var ókunnugt um. Það er án ártals, en segir líklega frá ferð í Bæjarstað 1933. Skógurinn var síðan girtur 1935 og sá Hákon um það verk ásamt bændum í sveitinni. Að mörgu leyti er greinin samkvæð þeirri, sem birtist í […]
Lesa meira » Written on July 6, 2022, by Águst · in Categories: Flóra
Mörgum hefur reynzt erfitt að greina plöntur, sem lifa jafnan í vatni. Einkum kemur tvennt til. Í fyrsta lagi eru vatnaplöntur oft án blóma og í öðru lagi eru blóm margra þeirra lítil og ósjáleg. Eftirfarandi lykil hef eg tekið saman til að auðvelda greiningu þessara tegunda. Hér eru teknar með helztu tegundir, sem vaxa […]
Lesa meira » Written on February 5, 2022, by Águst · in Categories: Flóra
Í nóvember 2015 setti eg hér inn pistil um Rorippa-ættkvísl (sjá hér). Síðan gerðist það, að hinn 28. júní 2019 fann eg Rorippa palustris (L.) Besser í Deildartungu í Reykholtsdal í Borgarfjarðarsýslu. Á lítt gróinni hálfdeigju uxu allnokkrar 6-12 cm háar plöntur og voru þær flestar bæði í blóma og með nærri fullþroska skálpa. Hinn […]
Lesa meira » Written on November 16, 2021, by Águst · in Categories: Almennt
Minnisgrein að gefnu tilefni um ævisögu Sigurðar Þórarinssonar Í nýútkominni ævisögu Sigurðar Þórarinssonar, Mynd af manni I-II, er víða getið um föður minn, Hákon Bjarnason. Það kemur ekki á óvart, því að þeir áttu ýmislegt saman að sælda. Vissulega skarst í odda með þeim tvisvar á langri ævi, en í bæði skiptin tókust fullar sættir, […]
Lesa meira » Written on August 18, 2021, by Águst · in Categories: Almennt
Vatnsnarvagrös – Catabrosa PB. 1812 Fáliðuð ættkvísl. Nú teljast þrjár tegundir til hennar, en áður voru tegundirnar mun fleiri; þær hafa verið felldar niður eða fluttar í aðrar kvíslir. Hér vex aðeins ein tegund, er lýsing á henni látin nægja. Catabrosa er komið úr grísku, katabrosis, éta, neyta; sumir telja nafnið til komið vegna þess, […]
Lesa meira »