… eins og fjólubláir draumar, segir í þekktu kvæði eftir Sigurð Þórarinsson.

Ekki kann sá, sem þessar línur ritar, að útskýra fjólubláa drauma. Hitt er sennilegt, að þessi tilvitnun sé sótt í bók eftir sænska listamanninn, rithöfundinn og teiknarann Albert Engström (1869-1940). Árið 1913 gaf hann út bókina Åt Häcklefjäll – minnen från en Islandsfärd. Þar segir svo á bls. 83 í þýðingu Ársæls Árnasonar (Rvík 1943), þegar siglt er inn Eyjafjörð:
„Í morgunmóðunni voru fjöllin eins og fjólubláir draumar – ég hefi ekki annað orð um það.“
ÁHB / 25.1. 2013