Posted in

Enn eitrar Vegagerðin

Augljóst er, að hér hefur verið eitrað. Ljósmynd: Kolbrún Hjaltadóttir.
Augljóst er, að hér hefur verið eitrað. Ljósmynd: Kolbrún Hjaltadóttir.
Augljóst er, að hér hefur verið eitrað. Ljósmynd: Kolbrún Hjaltadóttir.
Augljóst er, að hér hefur verið eitrað. Ljósmynd: Kolbrún Hjaltadóttir.

Siðast liðið sumar vakti eg athygli á, að Vegagerðin hafði úðað eiturefninu Roundup (eða Clinic) allvíða meðfram vegum til þess að halda vegaröxlum hreinum af gróðri.

Sjá hér: https://ahb.is/eiturefnahernadur-med-vegum/

Blöð og útvarp tóku upp þessa frétt, sem kom fólki verulega á óvart, og urðu margir til þess að lýsa óánægju sinni með þetta verklag Vegagerðarinnar. Í kjölfar umræðunnar var því lýst yfir að hálfu Vegagerðarinnar, að allri notkun á eiturefninu Roundup yrði hætt og leitað yrði annarra leiða til að koma í veg fyrir gróður í vegarköntum.

Annað hefur nú komið á daginn. Fólk á leið um Mýrdalssand fyrir skömmu tók eftir dauðri rák meðfram veginum, eins og meðfylgjandi mynd sýnir, sem Kolbrún Hjaltadóttir tók. Það er engum blöðum um það að fletta, að hér hafi eiturefni verið úðað yfir plönturnar.

Yfirlýsing Vegagerðarinnar frá því í fyrra hefur því reynzt vera marklaus með öllu.

Nú hlýtur það að vera skýlaus krafa, að Vegagerðin setji upp aðvörunarskilti við alla þá staði, þar sem eiturefni hefur verið úðað yfir. Þó að Vegagerðin ráði yfir næsta umhverfi meðfram þjóðvegum, þá berst eiturúðinn langt út fyrir það svæði eða allt að 400 metrum.

Eiturefnið Roundup var lengi talið skaðlaust öðrum lífverum en plöntum, en margir voru þó vantrúaðir á þá fullyrðingu. Nú á allra síðustu mánuðum hafa komið fram fjölmargar vísbendingar um, að Roundup sé miklu mun skaðlegra en áður var haldið.

ÁHB / 15. júní 2014

Steingrímur Ari Arason, forstjóri Sjúkratrygginga Íslands, hringdi í mig þriðjudaginn 14. nóvember og ræddum við lengi saman. Hann baðst fyrirgefningar á framkomu Sjúkratrygginga og taldi, að mistök á mistök ofan hafi valdið þessu. Farið yrði yfir alla verkferla, svo að slíkt endurtæki sig ekki. Einnig birtist viðtal við hann á MBL.is (https://www.mbl.is/frettir/innlent/2017/11/15/mikid_til_i_gagnryninni/).